Væri gott að fá línur í göturnar til að auka öryggi á þessum gatnamótum.
Það mætti líka banna bifreiðastöður meðfram Stakkahlíðinni frá Bogahlíð að Miklubraut. Þar er oft erfitt að mæta bílum og komast út á Miklubrautina.
Liggur oft við árekstri á kvöldin, sérstaklega þegar bílum er lagt neðst í Bogahlíðinni. Yrði ekki verra ef bifreiðastöður yrðu bannaðar í Bogahlíðinni frá Stakkahlíð að gatnamótum við Stigahlíð.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation