Kenna unglingum að skrifa ferilskrá og að fylla út atvinnuumsóknir. Benda á hvað vinnuveitendur eru að leita að og hvað sé mikilvægt að komi fram í umsókn. Einnig að þjálfa þá í að fara í atvinnuviðtöl og benda þeim á hvernig maður getur undirbúið sig fyrir þau og hvað sé mikilvægt að segja/gera í slíkum viðtölum. Einnig þarf að kenna þeim þeirra réttindi hvað laun og önnur kjör varðar og benda þeim t.d. á séreignasparnað og fleira þess háttar og hvernig þeir sækja um slíkt.
Allir þurfa að sækja um minnst eina vinnu einhvern tímann á lífsleiðinni. Því betur undirbúinn sem maður er, því betur stendur maður í harðri samkeppni um þær stöður sem í boði eru.
Ertu ekki að meina að náms-og starfsráðgjafi þurfi að vera starfandi í hverjum skóla? Þeir eiga að sinna m.a. þessu.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation