Stígurinn er orðinn erfiður fyrir t.d. línuskauta og hlaupahjól, mikið af holum í malbikinu og hólum þar sem bætt hefur verið í eldri holur. Malbika þyrfti hann alveg upp á nýtt, frá Leifasjoppu og að Gerðubergi.
Ef maður er stöðugt að hugsa um hversu slæmur göngustígurinn er þegar maður hjólar/gengur eftir honum, verður upplifunin neikvæð og það er eitthvað sem maður vill ekki þegar maður er úti í hverfinu sínu.
Ég er alveg hissa á því að sjá að Reykjavíkurborg telur ekki nauðsynlegt að laga stíginn algjörlega. Þarna er ekki hægt að fara um á hlaupahjólum eða línuskautum vegna þess að stígurinn er handónýtur og allt of gófur. Það er eins hægt að sleppa því að laga þessar holur ef ekki á að laga allan stíginn.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation