Það var alltaf slæm hugmynd að setja grjót í grasið meðfram götunni í Flúðaseli, bílum lagt á götunni í staðinn. Fjarlægja grjót og gras og mála bílastæði í staðinn.
Algjörlega sammála, þetta er mikið vandamál þar sem bílar eru að leggja á götunni og þrengja sýn og pláss á götunni.
Þetta er fjölmennasta gatan í Seljahverfinu, það verður að fjölga bílastæðum með því að setja járngrindur og gras sem vex í gegn eða leyfa aftur að leggja öðrum megin í götunni. Ég taldi 16 ólöglega lagða bíla fyrir stuttu síðan.
Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin er ekki tæk í kosningu í verkefninu Hverfið mitt 2018. Gerð bílastæða er skipulagsmál, skipulagsferli þess er of langt fyrir tímaramma verkefnisins. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.- 30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
Hægt væri að setja einhverskonar grindur ofaná grasið í staðinn fyrir steinana, þar sem grasið gæti vaxið líka. Þetta er endalaust vandamál alla daga.
leyfa það að leggja bílum á þeim stöðum þar sem lagt er í dag ólöglega í íbúðargötum meðfram gangstétt milli td. 20.00-07.00 yfir næturtímann
Vantar sárlega bílastæði á þessum stað.
Grindur og gras gæti verið lausn en ég mæli með að taka grasið og setja bílastæði, bara eins og er niðri í bæ við götur þar. Leggja báðum megin götunnar. Hitt væri að byggja ca 150 stæða bílahús t.d. á eyjunni milli Seljabrautar og Breiðholtsbrautar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation