Gæti verið gaman að koma fyrir nokkrum rólum e-s staðar á hafnarsvæðinu, þetta eru ekki rólur til að leika sér í bara sitja og rugga og njóta. Í hverri rólu gætu ca þrír setið saman og notið t.d. útsýnis. Rólusætið gæti verið úr þykkum viði, það er mikilvægt að það sé nokkuð þungt; þessi róla á ekki að geta farið hátt né hratt. Ég sé rólustatíið fyrir mér bogalagað (fremur hvass bogi) og úr e-s konar járni.
Tvær -þrjár Fjölskyldurólur geta gefið gamla hafnarsvæðinu notalega stemmningu.
Fagteymi sérfræðinga á umhverfis- og skipulagssviði hefur metið þessa hugmynd. Hugmyndin var metin tæk til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2018. Einungis er hægt að stilla 25 tækum hugmyndum upp til kosninga á hverju ári. Hverfisráð fór yfir tækar hugmyndir og þessi hugmynd rataði því miður ekki í uppstillingu þetta árið. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Hér má sjá lista yfir þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 17.-30. október nk. www.hverfidmitt.is Í kosningunni getur þú stjörnumerkt þína uppáhalds hugmynd og gefið henni þannig tvöfalt vægi!
Skipta um borgarstjòra
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation