Hraðahindrun og koddar yfir Njálsgötu við Gunnarsbraut þar sem farið er úr Norðurmýrinni á Njálsgöturóló.
Umferð er hröð á þessum kafla og þörf á að hægja á henni. Þarna fara krakkar yfir á rólóinn og erfitt að sjá bílana sem koma keyrandi v. þess hvernig bílum er lagt í stæði. Þeir skyggja á útsýni á götuna. Hlið inn á róló er við götuna beint á móti Gunnarsbraut þannig að börnin fara gjarnan yfir þarna.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation