Gróðursetning trjáa og runna meðfram Miklubrautar frá Stökkuhlíð til Hringbrautar.
Miklabraut liggur mjög nálægt húsum og virðist stundum sem að maður sé að keyra inn í íbúðarhverfi en ekki á hraðbraut. Miklabrautin myndi vera mikið bætt bæði frá sjónarhorni bílstjóra, farþega og ekki síður fyrir íbúa Miklubrautar sem þurfa að þola hávaða frá umferð og mengun. Það liggja grasbakkar meðfram Miklubruat á löngum köflum sem auðvelt væri að gróðursetja.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation